Sýning hjá Tryggva Snæ
AlmenntPosted by Rósa Tryggva Wed, April 16, 2008 14:31:25Jæja, helgin liðin og ný vika hálfnuð - meira hvað tíminn líður hratt.
Ég var að vinna um síðustu helgi, Hóddi í skólanum á laugardag og því lítið annað við að vera... jú jú, hvað er að mér. Hóddi fór á tónleika með Þursaflokknum á laugardagskvöldið með Trausta vinnufélaga sínum... og það var víst meiriháttar gaman.
Það er verið að vinna á fullu í verkefninu. Við fórum á mánudaginn fram í Kjarnalund og fylgdumst með heimsókn barnanna þangað. Mjög gaman.
Í dag vorum við á sýningu á leikskólanum. Það var deildin hans Tryggva núna sem var að troða upp. Þau sungu nokkur lög og sýndu afrakstur vetrarins í myndlist. Rosa flott hjá þeim... alltaf svo gaman að fara á þessar sýningar... þau standa sig svo vel börnin. Svo var kaffi inn á deild á eftir.
Eins og ég sagði frá hér um daginn þá vorum við að breyta og settum svefnsófa fram í leikherbergi krakkanna. Svo allt í einu seinnipartinn í gær þá kemur Tryggvi Snær til mín og segir mér að hann ætli að sofa frammi... og þá kemur litla skottið, Halldóra Mjöll og segist líka ætla að sofa þar ! Þannig að þau háttuðu og fóru fram í gær, lögðust upp í sófann með sængurnar sínar og koddana, spjölluðu aðeins og sofnuðu svo 
Og ég sem hélt að þetta væri bara grín hjá Tryggva..... æi, mér finnst svo notalegt að hafa þau inni hjá okkur. Þannig sváfu þau þessar elskur fram eftir kvöldi, en þegar ég var búin að læra og var að fara að sofa um kl.23.30 heyrði ég einhvern trítla á ganginum og þá var það Tryggvi að koma uppí !!!! Ha ha.. þannig að ég náði í Halldóru líka og við sváfum öll saman eins og venjulega.
Bestu kveðjur,
Rósa.
- Comments(0)http://blog.hoddi.dk/#post11

