Síðasti skóladagurinn
AlmenntPosted by Rósa Tryggva Wed, April 23, 2008 16:22:24Jæja, síðasti skóladagurinn liðinn í námi mínu sem iðjuþjálfi ! Það eru nú viss tímamót. Vorum í morgun í tveimur tímum þar sem var bara verið að spjalla um framtíðina og fortíðina og bara um allt og ekkert. Það var mjög huggulegt, vorum með kaffi og kökur og svoleiðis.
Annars er bara allt fínt að frétta. Búið að vera alveg yndislegt veður hér í marga daga, sól og blíða og vorið svo sannarlega látið finna fyrir sér. Krakkarnir eru auðvitað alsæl með það að geta verið á peysunum úti og þurfa ekki að vera dúðuð. Við erum búin að drekka úti á palli og svo komu stelpurnar úr bekknum mínum hingað á síðasta föstudag og við borðuðum hádegismat úti... aldeilis flott.
Við fórum á Húsavík síðustu helgi í fermingarveislu hjá Árdísi dóttir Heiðu og Minna. Það var mjög gaman og flott veisla.
Svo erum við bara búin að vera í þessu venjulega, vinnu, skóla og leikskóla. Erum að fara í leikhús í kvöld og pabbi með okkur, mamma ætlar að passa. Erum að fara á Fló á skinni. Pabbi bíður svo öllum í kaffi á morgun í tilefni af sumardeginum fyrsta. Það er kaffihlaðborð upp á golfvelli... umm... hlakka til.
Jæja, er að fara að ná í krakkana.
Bestu kveðjur,
Rósa.
- Comments(0)http://blog.hoddi.dk/#post12

