Rósa bloggari

Rósa bloggari

Um blog'ið

Um hvað ...............

Mikið um að vera

AlmenntPosted by Rósa Tryggva Thu, May 08, 2008 00:45:26

Hæ hæ.

Jæja, það er nú aldeilis mikið búið að vera um að vera hér hjá okkur síðan síðast. Við fórum í matarboð til Húsavíkur um síðustu viku, en þá var tengdamamma að halda upp á afmælið sitt og bauð öllum börnunum sem búa hér norðan heiða í mat. Það vildi ekki betur til en svo að Palli veiktist og fór á sjúkrahúsið hér á Akureyri. Við fórum svo heim aftur um kvöldið því ég var að vinna alla helgina í lokaverkefninu. Tengdamamma kom svo og lagðist inn á sjúkrahúsið hér á Akureyri á mánudagskvöldið og fór í aðgerð í gær. Palli fór í aðgerð í dag og sem betur fer gekk svona vel hjá þeim báðum.

Við vorum svo til að klára verkefnið / rannsóknina okkar í dag svo það eru heldur betur tíðindi. Eigum nú bara eftir að fínpússa og svoleiðis... skanna inn blöð, búa til glærur og fleira fyrir fyrirlesturinn.

Hvítasunnuhelgi framundan. Ég hélt við yrðum að vinna í verkefninu en nú lítur út fyrir að það þurfi ekki. Svo kannski við bregðum undir okkur betri fætinum og förum í Birkihlíð eða eitthvað. Svo styttist nú heldur betur í ferðina okkar út... bara rúm vika og allir orðnir vel spenntir.

Fórum í sund í dag og krakkarnir aldeilis ánægðir með það... finnst svo rosalega gaman í sundi.. jú... Hóddi dreif í því í gær að skipta yfir á sumardekk... erum búin að ætla að gera að lengi.. svo nú er það klárt.

Jæja, læt þetta nægja í bili.

Bestu kveðjur,

Rósa og fj.

  • Comments(0)http://blog.hoddi.dk/#post14